Klæðningar

Hjá Hús & Við sérhæfum við okkur í vönduðum klæðningum sem auka bæði endingu og útlit bygginga. Við erum með áratuga reynslu í klæðningargerð og vinnum við með fjölbreytt efni, svo sem Aluzink, ál, tré og sementsplötur sem skapa varanlegar og stílhreinar lausnir sem standast íslenskar aðstæður. Við leggjum áherslu á fagmennsku, gæði og nákvæm vinnubrögð, þannig að þú getur verið viss um að lokaútkoman verði til fyrirmyndar.

Við gerum tilboð í verkið þér að kostnaðarlausu - svona er ferlið

Við gerum allt til þess að ferlið gangi eins þægilega og hægt er fyrir þig. Margra ára reynsla skilar sér ávallt í þægindum fyrir viðskiptavin.

Við sérhæfum okkur í viðhaldi fasteigna, fyrir húseigendur, húsfélög, sumarhúsaeigendur, vinnu við nýbyggingar og viðbyggingar, gluggaskipti, þakskipti, flísalagnir & múrun.

Fáðu tilboð í þitt verk hér að neðan.

1

Símtal

Við heyrum í þér og fáum stutta lýsingu varðandi verk.

2

Úttekt

Við mætum til þín og tökum út verkstað.

3

Verklýsing

Við útbúum verklýsingu eftir úttektina og sendum á þig.

4

Tilboð

Við sendum þér fast verðtilboð.